Wednesday, September 05, 2007

Einn áfangi í höfn

Jæja þá er ég búin að skila verkefninu mínu. Ég skilaði seinasta föstudag og er bara búin að njóta lífsins síðan þá. Núna þarf ég hinsvegar að fara að undirbúa vörnina sem verður næsta fimmtudag, þannig að það er vonandi rétt rúm vika þangað til að ég verð verkfræðingur :).

Lilja kom til hingað í heimsókn á fimmtudagskvöldið og Maggý með systur sína og frænku á mánudaginn fyrir rúmri viku svo um helgina notuðum við tíman og gerðum ýmislegt skemmtilegt saman. Á föstudaginn þegar ég var búin að skila fór ég og hitti stelpurnar á Café Norden á Amager Torv. Svo var auðvitað kíkt aðeins í HogM og svona. Kvöldið var nú frekar rólegt þar sem ég var frekar þreytt eftir vikuna en Bergdís eldaði dýrindis Lasagnia handa okkur öllum. Á Laugardaginn tókum við Tryggvi okkur til og þrifum íbúðina, enda komin tími til. Ekki búið að þrífa almennilega í margar vikur. Svo fór ég og hitti stelpurnar í Tívolí. Við borðuðum á Wagamama sem er mjög góður núðlustaður og fengum mjög góðan mat. Á laugardagskvöldið sátum við svo fram eftir nóttu eins og okkur er lagið að spjalla. Á sunnudaginn fórum við svo með gestina í göngutúr um Kristíaníu það er alltaf jafn gaman að skoða húsin og fjölbreytileikan þar. Þegar við komum út úr kristíaníu vorum við rétt hjá snilldarveitingastaðnum Rimini og klukkan var að verða sex svo við skelltum okkur þangað og fengum okkur kvöldmat. Á mánudaginn kíktum við Lilja aðeins í bæinn en svo fóru allar stelpurnar heim á mánudagskvöldið. Það var svo skemmtilegt að fá þær í heimsókn :)
Í dag er ég svo að fara að hitta fleiri ferðamenn í danmörku, Gróa, Daði og Þorgeir litil eru hér í heimsókn og ég ætla að hitta þau í bænum. Get varla beðið eftir að sjá hann Þorgeir með eigin augum.
Jæja læt þetta duga í bili
Þórhildur

12 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Til hamingju með skilin og gangi þér vel á fimmtudaginn að verja :)

... ég var að byrja í fríi á mánudaginn, og einbeiti mér nú að því að koma mínu barni út... hehehe... jú og reyna að slappa af :)

5/9/07 13:26  
Blogger Guðlaug said...

Til hamingju með skilin á verkefninu. Þú átt eftir að rúlla upp vörninni ;) Vonandi náum við Svenni að sjá aðeins í skottið á ykkur skötuhjúum áður en við förum til Íslands. Verðum í sambandi. Gangi þér vel!

5/9/07 20:55  
Blogger Unknown said...

til hamingju að vera búin að skila:) og gangi þér rosa vel með vörnina. hlakka til að hitta ykkur liiige om lidt.

5/9/07 22:19  
Anonymous Anonymous said...

Æðislegt :) Gangi þér vel!

6/9/07 12:27  
Anonymous Anonymous said...

Jei jei! Til hamingju með að vera búin að skila! Vörnin verður pís of keik fyrir svona klára og sæta stelpu eins og þig.

Knús,
Hidda

6/9/07 16:32  
Blogger Ekkatín said...

Hej :)
Til hamingju með að vera búin að skila verkefninu! Gangi þér svo vel með vörnina :) Það verður gaman að sjá þegar litla krílið kemur :D

Hej Hej Eva og Örn

6/9/07 21:38  
Anonymous Anonymous said...

Takk fyrir mig. Það var mjög gaman að sjá ykkur og vera saman.

Sæt mynd af okkur. Ég á nú líka eina sykursæta af ykkur Tryggva sem ég ætti eiginlega að skella á Yveco síðuna. Fæ ég leyfi til þess?

Lilja

7/9/07 14:12  
Blogger Ásta S. Fjeldsted said...

Vá, til hamingju elsku Þórhildur mín! og vá hvað þetta eru yndislegar myndir af þér. Virðist bara eins og þetta sé minnsta mál í heimi fyrir þig. Glæsileg alveg hreint. Hlakka til heyra hvernig gengur með vörnina og heimskomu Bumbubúans!!!
Risa knús og kram frá Íslandi
þín Ásta Sigga

8/9/07 03:00  
Blogger Ásdís said...

Til hamingju með ritgerðarskil! Þú átt eftir að massa þessa vörn!:D

11/9/07 06:10  
Anonymous Anonymous said...

þú ert hetja !

massar þessa vörn og skýtur svo út eins og einu barni þegar vörninni er lokið..

gangi þér sem allra allra best !

11/9/07 22:39  
Blogger Þórhildur said...

Takk fyrir allar kveðjurnar ;) og Lilja þú mátt alveg setja myndina inn á yveco... ég á ekki von á öðru en ég líti vel út eins og alltaf ;D

11/9/07 23:13  
Anonymous Anonymous said...

Gangi þér ótrúlega vel á morgun. Gamla settið biður að heilsa.

Rut

12/9/07 20:50  

Post a Comment

<< Home